Uppfært 12. september 2026

Um AI-þjónustuna

Alexander, símsvari Zóns

Alexander er AI-símsvari Zóns. Þjónustan tekur við símtölum, notar samþykktar grunnupplýsingar og tekur skilaboð innan umsaminna marka. Uppsetning og prófun fara fram fyrir hvert fyrirtæki. Opin vefsíða þýðir ekki að símsvörun hafi þegar verið virkjuð.

Prófun fyrir gangsetningu

Fyrir afhendingu símsvörunar prófum við íslenskt símahljóð, nöfn og númer, leiðréttingar, óþekkt erindi og varaleið í talhólf. Niðurstöður prófa þarf að liggja fyrir; við lofum ekki villulausri AI-svörun.

Þú stjórnar samþykktum

Alexander á ekki að skálda verð eða staðfesta bókanir án heimildar. Eigandi staðfestir svör, sinnir eftirfylgni og samþykkir gangsetningu. Val vinnsluaðila og meðferð persónuupplýsinga er staðfest áður en símsvörun er virkjuð.